Raka- og mygluúttekt

Rétt greining er fyrsta og mikilvægasta skrefið þegar grunur vaknar um myglu eða óheilbrigð loftgæði í húsnæði. Án nákvæmrar greiningar er hætta á að gripið sé til rangra eða ófullnægjandi aðgerða sem leysa ekki undirliggjandi vandamál.

Hjá Disact leggjum við mikla áherslu á faglega ástandsskoðun og mælingar áður en ráðist er í meðferð eða aðrar aðgerðir. Markmiðið er að fá skýra og mælanlega mynd af ástandinu í rýminu svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref.

Hvenær er ástæða til að láta skoða húsnæði?

Raka- og mygluvandamál eru ekki alltaf sýnileg. Ástæða getur verið til að óska eftir skoðun ef:

  • Myglulykt eða viðvarandi fúkkalykt finnst í rými.
  • Rakablettir, bólgin málning eða breytingar á yfirborðum koma fram.
  • Leki eða vatnstjón hefur orðið.
  • Sýnileg ummerki eru um myglu.
  • Grunur er um raka í byggingarhlutum.
  • Meta þarf ástand húsnæðis eftir viðgerðir eða hreinsun.

Hvað felst í raka- og mygluúttekt?

Við byrjum á að fara yfir sögu húsnæðisins og upplýsingar um leka, viðgerðir, lykt eða önnur atriði sem kunnað skipta máli. Húsnæðið er síðan skoðað með tilliti til raka, rakaskemmda og mögulegrar myglu. Rakamælingar eru framkvæmdar og hitamyndavél notuð eftir þörfum til að kanna vísbendingar um frávik í byggingarhlutum. Niðurstöður skoðunarinnar ráða því hvort þörf er á sýnatöku eða frekari rannsóknum.

Mycometer greining

Disact notar Mycometer-greiningu til að meta magn myglu í lofti og á yfirborðum. Aðferðin byggir á mælingu á ensímvirkni sem tengist sveppum og getur greint bæði lifandi og dauða sveppahluta.

Niðurstöðurnar eru túlkaðar samhliða rakamælingum, sjónskoðun og upplýsingum um húsnæðið. Þær geta stutt við mat á þörf fyrir frekari rannsóknir eða úrbætur og nýst við eftirfylgni að lokinni hreinsun.

Mycometer-greining greinir ekki hvaða myglutegundir eru til staðar og staðfestir ekki ein og sér hvort mygla sé í virkum vexti.

DNA greining eftir þörfum

Ef þörf er á nánari upplýsingum um hvaða myglutegundir eru til staðar býður Disact einnig upp á DNA-greiningu. Val á greiningaraðferð tekur mið af aðstæðum og þeim spurningum sem þarf að svara. Ekki er þörf á öllum tegundum mælinga eða sýnatöku í hverju verkefni.

Skýrar niðurstöður og tillögur að úrbótum

Að lokinni skoðun og greiningu færðu greinargerð með niðurstöðum, mati á aðstæðum og ráðleggingum um næstu skref.

Eftir umfangi verkefnisins er meðal annars farið yfir:

  • Hvað var skoðað og hvaða mælingar voru framkvæmdar.
  • Niðurstöður sýnatöku, ef sýni voru tekin.
  • Vísbendingar um raka, rakaskemmdir eða myglu.
  • Þörf fyrir frekari rannsóknir.
  • Tillögur að viðgerðum, hreinsun og eftirfylgni.


Niðurstöður valinna greininga geta legið fyrir innan sólahrings sé þess sérstaklega óskað. Afhendingartími fer eftir greiningaraðferð og umfangi verkefnis.

Mikilvægt er að finna og laga orsökina

Ef raki eða mygla finnst þarf að kanna hvaðan rakinn kemur og stöðva upptökin. Eftir aðstæðum getur þurft að þurrka byggingarhluta, gera við leka, fjarlægja skemmd efni eða bæta loftræstingu.


Hreinsun og önnur meðhöndlun eru valin út frá niðurstöðum greiningarinnar. Þau koma ekki í stað nauðsynlegra viðgerða á rakaskemmdu húsnæði.

Svona hefst ferlið

  1. Fyrsta samtal
    Þú hefur samband og við förum yfir aðstæður og metum þörf fyrir skoðun.
  2. Skoðun og mælingar
    Við skoðum húsnæðið, framkvæmum rakamælingar og metum hvort taka þurfi sýni.
  3. Niðurstöður og næstu skref
    Þú færð niðurstöður og ráðleggingar um viðeigandi aðgerðir og eftirfylgni.

Er grunur um raka eða myglu?

Þú þarft ekki að vita umfang vandans áður en þú hefur samband. Við aðstoðum þig við að meta stöðuna og finna viðeigandi næstu skref.

Markmiðið er alltaf að styðja við heilbrigða innivist, minnka áhættu og tryggja að aðgerðir byggi á raunverulegum gögnum.  Disact getur skilað niðurstöðum innan sólarhrings sé þess óskað. 

Raka- og mygluúttekt felur í sér mat á aðstæðum þar sem kannað er hvort mygla sé til staðar, eða önnur vandamál eins og raki, ónæmisvaldar eða örverumyndun.

Skoðað er meðal annars:

  • Loftgæði Rakastig og möguleg rakavandamál.
  • Merki um myglu- eða örverumyndun í lofti og á yfirborðum. m.a. hvort myglusporar og/eða mygluþræðir séu í lofti.
  • Ástand byggingarefna
  • Hvort aðstæður geti stuðlað að áframhaldandi mygluvexti

Við notum meðal annars hraðvirka, alþjóðlega viðurkennda greiningartækni sem gerir okkur kleift að mæla örverumagn (t.d. mygluspora-) og ofnæmisvalda í lofti og á yfirborðum. Niðurstöður fást hratt og gefa skýra vísbendingu um hvort örverumagn eða ofnæmisvaldar séu innan eða utan viðmiðunarmarka.

Greiningin veitir áreiðanleg gögn sem styðja við faglegt mat á ástandinu. sé þess óskað er einnig hægt að framkvæma tegundagreiningu með DNA- greiningartækni.

Disact getur skilað niðurstöðum greininga innan sólahrings sé þess sérstaklega óskað.

Er grunur um raka eða um myglu?

Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.

1. Ráðgjöf í síma eða tölvupósti

Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.

2. Ástandsskoðun og greining

Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.

3. Niðurstöður og tillaga til úrbóta

Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.

4. Lausnir til úrbóta

Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.

5. Eftirfylgni &/eða forvarnir

Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.

Markmiðið

Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.