Rétt greining er fyrsta og mikilvægasta skrefið þegar grunur vaknar um myglu eða óheilbrigð loftgæði í húsnæði. Án nákvæmrar greiningar er hætta á að gripið sé til rangra eða ófullnægjandi aðgerða sem leysa ekki undirliggjandi vandamál.
Hjá Disact leggjum við mikla áherslu á faglega ástandsskoðun og mælingar áður en ráðist er í meðferð eða aðrar aðgerðir. Markmiðið er að fá skýra og mælanlega mynd af ástandinu í rýminu svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref.
Fyrsta skrefið er stutt símtal þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástæða sé til ástandsskoðunar. Markmiðið er að fá fyrstu mynd af stöðunni og ráðleggja um næstu skref.
Við framkvæmum ástandsskoðun á húsnæðinu þar sem: Húsnæðið er sjónskoðað með tilliti til raka, rakaskemmda og annarra vísbendinga um mögulegan mygluvanda. Rakamælingar eru framkvæmdar og skoðun með hitamyndavél fer fram ef þörf krefur til að greina mögulegan raka eða leka í byggingarhlutum. Grunnverð 59.990 kr. (m/vsk)
Ef ástandsskoðun gefur vísbendingar um raka eða mögulegar rakaskemmdir getur verið þörf á frekari greiningu.
Mycometer greining
Ef hækkaður raki eða rakaskemmdir finnast getur verið talin ástæða til að taka efnissýni. Mycometer greining mælir líffræðilega virkni myglu í lofti eða á yfirborðum og gefur skýra vísbendingu um hvort mygla sé virk í rýminu.
DNA greining
Ef ástæða þykir til er tekið DNA-sýni til að greina hvaða myglutegundir eru til staðar, meta umfang rakaskemmda og kanna hvort mengun hafi dreifst um rýmið.
Greinargerð
Niðurstöður skoðunar og sýnatöku eru teknar saman í greinargerð þar sem farið er yfir stöðuna og lagðar fram tillögur að viðeigandi úrbótum ef þörf er á.
Þurrmistursþokun Disact
Með háþrýstibúnaði myndum við sótthreinsandi og myglueyðandi þurrmistur sem dreifist jafnt um rýmið og smýgur í skúmaskot og erfitt aðgengilega staði. Meðhöndlunin vinnur beint á örverum og dregur verulega úr líffræðilegri virkni myglu. Efnablöndurnar sem notaðar eru eru sérþróaðar af Disact.
ActivePure lofthreinsitækni
Í ákveðnum tilfellum getur verið nægjanlegt að meðhöndla rými með ActivePure lofthreinsitækjum sem við bjóðum til útleigu. ActivePure tæknin er þróuð til að draga úr skaðlegum örverum, bakteríum og öðrum aðskotaefnum í lofti og á yfirborðum innandyra.
Aðrar lausnir
Ef þörf krefur vinnum við með sérhæfðum samstarfsaðilum við frekari úrbætur, til dæmis þegar framkvæma þarf djúphreinsun eða fjarlægja menguð byggingarefni. Við leiðum viðskiptavini í gegnum ferlið og aðstoðum við að finna viðeigandi lausnir.
Regluleg þokun
Til að viðhalda góðu ástandi í rýminu getur verið ráðlagt að framkvæma reglulega þokun, til dæmis einu sinni til tvisvar á ári.
ActivePure lausnir
ActivePure tæknin hefur reynst vel bæði sem forvörn og til að viðhalda góðum loftgæðum til lengri tíma. Við bjóðum upp á bæði stök tæki til útleigu og sérsniðnar lausnir sem tengjast loftræstikerfum bygginga.
Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.
Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.
Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.
Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.
Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.
Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.
Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.