Rétt greining er fyrsta og mikilvægasta skrefið þegar grunur vaknar um myglu eða óheilbrigð loftgæði í húsnæði. Án nákvæmrar greiningar er hætta á að gripið sé til rangra eða ófullnægjandi aðgerða sem leysa ekki undirliggjandi vandamál.
Hjá Disact leggjum við mikla áherslu á faglega ástandsskoðun og mælingar áður en ráðist er í meðferð eða aðrar aðgerðir. Markmiðið er að fá skýra og mælanlega mynd af ástandinu í rýminu svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref.
Ástandsskoðun og greining felur í sér mat á aðstæðum þar sem kannað er hvort mygla sé til staðar, eða önnur vandamál eins og raki, ónæmisvaldar eða örverumyndun.
Skoðað er meðal annars:
Við notum meðal annars hraðvirka, alþjóðlega viðurkennda greiningartækni sem gerir okkur kleift að mæla örverumagn (t.d. mygluspora-) og ofnæmisvalda í lofti og á yfirborðum. Niðurstöður fást hratt og gefa skýra vísbendingu um hvort örverumagn eða ofnæmisvaldar séu innan eða utan viðmiðunarmarka.
Greiningin veitir áreiðanleg gögn sem styðja við faglegt mat á ástandinu. sé þess óskað er einnig hægt að framkvæma tegundagreiningu með DNA- greiningartækni.
Disact getur skilað niðurstöðum greininga innan sólahrings sé þess sérstaklega óskað.
Að lokinni ástandsskoðun fær viðskiptavinur skýra samantekt á niðurstöðum mælinga og mati á aðstæðum í rýminu. Í framhaldinu leggjum við fram tillögur um viðeigandi lausnum, hvort sem það er úrbætur eins og mygluþryf, þokun, viðgerðir eða forvarnir til lengri tíma.
Markmiðið er alltaf að styðja við heilbrigða innivist, minnka áhættu og tryggja að aðgerðir byggi á raunverulegum gögnum.
Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.
Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.
Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.
Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.
Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.
Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.
Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.