Leiðandi þjónustufyrirtæki í loftgæðalausnum og mygluvörnum

Disact ehf. er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem þróar og innleiðir tæknilausnir og efnablöndur til að bæta inniloft og innivist með því að vinna markvisst gegn myglu, skaðlegum örverum og öðrum vágestum í byggingum. Lausnir Disact byggja á vísindalegri nálgun og mælanlegum árangri, með það að markmiði að skapa heilbrigðara, öruggara og sjálfbærara umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki.

Disact veitir ráðgjöf, mælingar og lausnir til úrbóta fyrir bætta innivist á heimilum, hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum um allt land. Fagleg greining á vandamálum tengdum rakaskemmdum, myglu og öðrum ofnæmisvöldum. Disact leggur til markvissar aðgerðir, svo sem sótthreinsiþokun, mygluþrif og/eða ActivePure lofhreinsitæki, ásamt leiðbeiningum og lausnum til forvarna.

Disact vinnur með öflugum samstarfsaðilum sem hver um sig eru sérfræðingar á sínu sviði. Við tryggjum heildstæða nálgun þar sem allir þættir verkefnisins eru teknir fyrir, allt frá djúphreinsun til mögulegs niðurrifs, uppbyggingar og annarra sérhæfðra innvistarlausna. Við leggjum ríka áherslu á að halda vel utan um viðskiptavini okkar og fylgja þeim eftir í gegnum allt ferlið – frá greiningu vandans til varanlegrar lausnar.

Helstu þjónustuþættir DISACT:

  1. Loftgæðamælingar og faglegt mat á ástandi húsnæðis.
  2. Greining á rakaskemmdum, myglu og öðrum loftgæðatengdum vandamálum.
  3. Markvissar lausnir til úrbóta, þar á meðal sótthreinsiþokun, mygluþrif og ActivePure lofthreinsitæki.
  4. Ráðgjöf og leiðbeiningar um forvarnir og bætta innivist.

Lausnin...

Efnaformúlan DSCT byggir á fjórgildum ammoniumsamböndum og er sérstaklega framleitt til þess að veita vörn gegn bakteríum, veirum, örverum og myglusvepp. Virkni formúlunar hefur verið staðfest af innlendum og erlendum rannsóknum.

Efnin:
Skilvirk
Umhverfisvæn
Örugg
Langtímaáhrif

Teymið okkar

Ingibjörg Magnúsdóttir

Framkvæmdastjóri

Steinunn M. Gunnlaugsdóttir

Skrifstofa

Yngvi Örn Stefánsson

Verkefnastjóri

Sólveig R. Gunnarsdóttir

Stjórnarformaður

Einar Mäntylä

Stjórnarmaður

Guðmundur Sigþórsson

Stjórnarmaður