Við bjóðum upp á sótthreinsilausnir á vinnustöðum, stofnunum og heimilum. Markmiðið er að stuðla að betra heilsufari og öruggara umhverfi fyrir fólk í sínu daglega lífi.
Ef grunur leikur á að loftgæðin á þínum vinnustað eða heimili séu ekki nægilega heilnæm eða mögulega skaðleg heilsu, ekki hika við að hafa samband og fáðu annað hvort fría ráðgjöf eða tíma í ástandsskoðun.
Teymið okkar er með margra ára reynslu í sótt- og mygluvörnum.
Við ráðleggjum hvaða skref er best að taka við þínar aðstæður.