Disact býður upp á margvíslegar lausnir til úrbóta á loftgæðavandamálum. Þar má helst nefna sérþróaða lausn okkar við Myglu- og sótthreinsiþokun. Einnig bjóðum við upp á Mygluþrif, niðurrif eða uppbyggingu og aðrar innvistalausnir í gegnum okkar samstarfsaðila. Að lokum má nefna ActivePure tæknina en disact er með sérleyfissamning fyrir þá tækni á íslandi.
Efnaformúlan DSCT byggir á Fjórgildum ammoniumsamböndum og er sérstaklega framleitt til þess að veita vörn gegn bakteríum, veirum, örverum og myglusvepp. Efnin eru hvorki ertandi né ætandi, skaða ekki yfirborð og hafa sýnt mjög góðan árangur gegn algengustu myglutegundum í húsnæði, byggt á innlendum og erlendum rannsóknum. Efnin hafa langvarandi virkni þar sem þau eru hönnuð til að skilja eftir sig virkt yfirborðslag.
Með miklum loftþrýstingi mynda tækin okkar sótthreinsandi og myglueyðandi þokumistur sem smýgur í öll skúmaskot. Þokunin tryggir jafna dreifingu í rýminu og nær bæði til lofts og yfirborða, þar á meðal svæða sem erfitt er að meðhöndla með hefðbundnum aðferðum.
Meðhöndlunin vinnur beint á myglunni og hindrar endurvöxt ef sýkta efnið hefur verið fjarlægt og búið er að koma í veg fyrir lekann.
Aðferðin er fljótvirk, skemmir ekki yfirborð og krefst þess ekki að rýmið sé tæmt. Árangur næst innan um 30 mínútna og hægt er að meðhöndla stór rými á skömmum tíma.
Meðhöndlunin getur átt sér stað utan hefðbundins vinnutíma og án þess að raska starfsemi félagsins eða stofnanna.
Dæmi um notagildi Myglu- og sótthreinsiþokunnar
Þessi listi er allst ekki tæmandi en notagildi þokunnar eru margvísleg. Heyrðu í okkur og fáðu ráðgjöf um hvaða aðferð hentar til úrlausna á þínu vandamáli.
Disact vinnur með öflugum samstarfsaðilum sem hver um sig eru sérfræðingar á sínu sviði. Við tryggjum heildstæða nálgun þar sem allir þættir verkefnisins eru teknir fyrir, allt frá djúphreinsun til mögulegs niðurrifs, uppbyggingar og annarra sérhæfðra innvistar lausna. Við leggjum ríka áherslu á að halda vel utan um viðskiptavini okkar og fylgja þeim eftir í gegnum allt ferlið – frá greiningu vandans til varanlegrar lausnar.
Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.
Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.
Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.
Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.
Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.
Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.
Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.