Loftgæðavöktun – betri yfirsýn, betri innivist

Veistu hvernig loftið er hjá þér?

Loftgæði sjást ekki með berum augum og geta breyst mikið yfir daginn.

Með AirBeld loftgæðavöktun getur þú fylgst með loftgæðum í rauntíma, greint breytingar og brugðist við áður en vandamál verða umfangsmeiri.

DISACT sér um uppsetningu mælitækja, vöktun og faglega ráðgjöf. Þannig færðu ekki bara mæligögn heldur upplýsingar sem nýtast til að bæta innivist.

Stöðug vöktun. Skýr yfirsýn. Markvissar úrbætur.

Loftgæði breytast með loftræstingu, fjölda fólks og starfsemi í húsnæðinu.

Stök mæling sýnir ástandið á tilteknum tíma, en AirBeld fylgist stöðugt með og hjálpar til við að greina sveiflur og endurtekin frávik.

Helstu kostir AirBeld:

  • Rauntímaupplýsingar: Fylgstu með loftgæðum í aðgengilegu appi eða vefviðmóti.

  • Snemmbær viðbrögð: Komdu fyrr auga á breytingar sem kalla á nánari skoðun.

  • Betri ákvarðanir: Nýttu mæligögn til að meta þörf fyrir úrbætur.

  • Fagleg eftirfylgni: DISACT aðstoðar við túlkun niðurstaðna og ráðgjöf.

Hvað mælir AirBeld?

AirBeld fylgist með lykilþáttum sem hafa áhrif á loftgæði og innivist:

  • Koltvísýringur (CO₂): Gefur vísbendingar um loftskipti miðað við viðveru fólks.

  • Svifryk (PM1, PM2,5, PM4 og PM10): Mælir magn loftborinna agna í mismunandi stærðarflokkum.

  • Rokgjörn lífræn efni (VOC): Vísitala sem sýnir breytingar tengdar rokgjörnum efnum, meðal annars frá hreinsiefnum og byggingarefnum.

  • Köfnunarefnisoxíð (NOx): Vísitala sem getur gefið vísbendingar um breytingar tengdar loftmengun.

  • Hitastig og loftraki: Veita mikilvægar upplýsingar um aðstæður og þægindi innandyra.

Mælingarnar hjálpa til við að greina mynstur og breytingar sem annars gætu farið fram hjá okkur

Hvernig virkar þjónustan?

1. Mat og uppsetning

DISACT metur aðstæður og setur upp eitt eða fleiri AirBeld mælitæki eftir stærð, skipulagi og notkun húsnæðisins.

2. Samfelld loftgæðavöktun

Tækin safna mæligögnum og birta þau í stafrænu viðmóti. Þú færð yfirsýn yfir loftgæðin og DISACT fylgist jafnframt með mælingum og frávikum frá skilgreindum viðmiðum.

3. Ráðgjöf og eftirfylgni

Við aðstoðum við að túlka niðurstöður, greina mögulegar orsakir frávika og leggja til viðeigandi úrbætur. Áframhaldandi vöktun gerir síðan kleift að fylgjast með þróuninni og meta áhrif aðgerða.

Fyrir hverja hentar loftgæðavöktun?

AirBeld hentar fyrirtækjum, stofnunum, fasteignaeigendum og heimilum sem vilja hafa betri yfirsýn yfir innivist.

Vöktunin getur meðal annars nýst til að:

  • Meta loftgæði á skrifstofum og vinnustöðum.

  • Fylgjast með aðstæðum í skólum og leikskólum.

  • Greina sveiflur í loftræstingu, hita og rakastigi.

  • Fylgjast með loftgæðum í einu eða fleiri rýmum.

  • Meta árangur úrbóta og breytinga á húsnæði.

AirBeld greinir ekki myglu sérstaklega og mælir ekki raka í byggingarefnum. Ef grunur er um raka- eða mygluvandamál getur verið þörf á sérstakri skoðun eða sýnatöku.

Betri loftgæði byrja á betri upplýsingum

Með AirBeld og ráðgjöf DISACT færðu betri yfirsýn yfir loftgæðin og traustari grunn til að taka ákvarðanir um innivist, viðhald og forvarnir.

Við aðstoðum þig við að finna lausn sem hentar þínu húsnæði, hvort sem um er að ræða eitt rými eða stærri byggingu.

Vöktun í rauntíma. Fagleg ráðgjöf. Markviss eftirfylgni.

Ef grunur kemur upp um myglu

Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.

1. Ráðgjöf í síma eða tölvupósti

Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.

2. Ástandsskoðun og greining

Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.

3. Niðurstöður og tillaga til úrbóta

Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.

4. Lausnir til úrbóta

Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.

5. Eftirfylgni &/eða forvarnir

Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.

Markmiðið

Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.