Disact valinn dreifingaraðili ActivePure® á Íslandi

Disact hefur gert samstarfssamning við ActivePure Technology Canada og er nú valinn dreifingaraðili ActivePure® á Íslandi. Um er að ræða einkaleyfisvarða loft- og yfirborðstækni sem á rætur í geimrannsóknum NASA og hefur verið þróuð til að draga úr örverum og tilteknum mengunarefnum í innandyraumhverfi.

ActivePure® er þegar í notkun hér á landi, meðal annars hjá sveitarfélögum, á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum og í grunn- og leikskólum. Með nýju samstarfi vill Disact auka aðgengi að tækninni og kynna þá möguleika sem hún býður upp á fyrir íslensk heimili, vinnustaði og stofnanir.

Frá geimrannsóknum NASA til heilnæmara innilofts

Uppruna ActivePure® má rekja til rannsókna sem unnar voru með stuðningi bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA á tíunda áratugnum. Tæknin var síðar þróuð áfram til notkunar í byggingum og hlaut árið 2017 inngöngu í Space Technology Hall of Fame hjá Space Foundation.

ActivePure® er virk loft- og yfirborðstækni sem byggir á ljósvirkjuðu ferli, Advanced Photohydrolysis. Ólíkt hefðbundinni loftsíun, þar sem loft þarf að fara í gegnum síu, myndar tæknin virkar sameindir úr raka og súrefni loftsins sem dreifast um rýmið og geta haft áhrif á örverur bæði í lofti og á yfirborðum.

Tæknin er hönnuð til að vinna stöðugt í rýminu, einnig á meðan fólk dvelur þar. Í sumum tækjum er hún jafnframt notuð samhliða HEPA-síum og virkum kolefnissíum.

Rannsóknir sýna áhugaverðan árangur

Virkni ActivePure® hefur verið rannsökuð bæði við stýrðar rannsóknarstofuaðstæður og í raunverulegu innandyraumhverfi.

99% fækkun ræktanlegra myglusveppa í lofti

Í rannsókn á bráðamóttöku Hospital Universitario La Paz í Madríd, sem kynnt var árið 2023, mældist 99% fækkun ræktanlegra myglusveppa í loftsýnum eftir að ActivePure® var tekin í notkun. Áhrifin komu fram á báðum mælistöðum rannsóknarinnar og héldust út 24 klukkustunda mælitímabilið.

Yfir 99% óvirkjun SARS-CoV-2-veira

Í ritrýndri rannsókn sem birtist árið 2025 í American Journal of Infection Control sýndu vísindamenn við University of Texas Medical Branch fram á að ActivePure® gerði yfir 99% smitvirkra SARS-CoV-2-veira í loftúða óvirkar við stýrðar rannsóknarstofuaðstæður. Forprófanir sýndu einnig virkni gegn RS-veiru (RSV) og mpox-veiru.

Rannsóknirnar sýna möguleika tækninnar sem viðbótar við hefðbundnar loftgæða- og sýkingavarnaráðstafanir. Árangur getur þó verið mismunandi eftir aðstæðum, gerð tækis og þeim örverum sem um ræðir.

Ein tækjagerð sem nýtir tæknina, Aerus Medical Guardian F170A, hefur jafnframt fengið 510(k)-markaðsheimild frá bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu FDA sem lækningatæki í flokki II. Heimildin á við um þessa tilteknu tækjagerð.

Heilnæmt inniloft á ekki að vera forréttindi

Ingibjörg Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Disact, segir samstarfið mikilvægan þátt í þeirri stefnu fyrirtækisins að efla forvarnir og auka meðvitund um áhrif innivistar á heilsu og líðan.

„Við verjum stærstum hluta ævinnar innandyra. Börnin okkar í skólum og leikskólum, við sjálf á vinnustöðum og margir viðkvæmustu hópar samfélagsins á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum. Loftið sem við öndum að okkur skiptir máli fyrir heilsu okkar og líðan.

Á Íslandi hefur umræðan um innivist að miklu leyti snúist um myglu og rakaskemmdir, enda eru það alvarleg viðfangsefni. En heilnæmt inniloft snýst um miklu fleira. Við þurfum líka að huga að bakteríum, veirum, öðrum örverum og mengunarefnum í umhverfinu.

Það sem gerir ActivePure® sérstaklega áhugaverða tækni er að hún er hönnuð til að vinna stöðugt í rýminu, ekki aðeins þegar vandamál koma upp. Við sjáum mikil tækifæri til að nýta hana sem hluta af markvissum forvörnum.

Við viljum að fleiri geti nýtt sér þá tækni og þekkingu sem þegar er til staðar. Heilnæmt inniloft á ekki að vera forréttindi heldur sjálfsagður hluti af því hvernig við hugsum um heilsu, vinnuvernd og rekstur bygginga.“

ActivePure® sem hluti af heildstæðum lausnum Disact

Disact leggur áherslu á að sameina mælingar, greiningar, úrbætur og forvarnir til að stuðla að heilnæmara innandyraumhverfi.

ActivePure® bætir við þá þjónustu virkri loft- og yfirborðstækni sem hentar fjölbreyttu húsnæði, allt frá heimilum og skrifstofum til skóla, heilbrigðisstofnana og stærri atvinnubygginga.

Tæknin getur meðal annars verið gagnleg viðbót við aðgerðir vegna örverumengunar. Hún kemur þó ekki í stað þess að finna og lagfæra orsakir rakaskemmda eða fjarlægja skemmd byggingarefni.

Viltu vita hvort ActivePure® henti þínu húsnæði?

Disact býður ActivePure®-lausnir bæði til kaups og leigu. Við aðstoðum einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir við að velja lausnir sem henta þeirra húsnæði og þörfum.

Kynntu þér ActivePure® hjá Disact

Sími: 577 1818

Netfang: disact@disact.is

Heimildir og frekari upplýsingar