Disact eflir áherslu á lýðheilsu, heilnæma innivist og áhrif umhverfis á heilsu, líðan og hegðun fólks.
Ingibjörg Magnúsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Disact. Hún kemur til fyrirtækisins með víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og viðskiptaþróun ásamt menntun á sviði mannfræði og lýðheilsuvísinda.
Ingibjörg starfaði áður sem viðskiptaþróunarstjóri Lotu verkfræðistofu og þar áður um árabil hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi, meðal annars sem framkvæmdastjóri fjáröflunar. Hún hefur einnig sinnt alþjóðlegri stefnumótun og ráðgjöf fyrir UNICEF.
Ingibjörg er með meistaragráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og framhaldsmenntun í lýðheilsuvísindum og hagnýtum jafnréttisfræðum. Hún hefur jafnframt lagt stund á nám í stjórnun og leiðtogafræðum. Auk þess situr hún í stjórn Barnaheilla, er í viðskiptanefnd Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er varamaður í tómstunda- og frístundaráði Árborgar.
Heilnæm innivist er lýðheilsumál
Ingibjörg hefur lengi haft áhuga á því hvernig umhverfið sem við sköpum hefur áhrif á heilsu, líðan og hegðun fólks.
„Hvernig hefur umhverfið sem við sköpum áhrif á það hvernig okkur líður, hugsum, hegðum okkur og störfum? Og hvernig getum við gert það betra? Þessar spurningar hafa lengi verið mér hugleiknar og tengja saman áhuga minn á mannlegri hegðun, lýðheilsu og umhverfinu sem við búum við,“ segir Ingibjörg.
Hún leggur áherslu á að heilnæm innivist eigi að vera eðlilegur hluti af lýðheilsu og forvörnum, hvort sem um er að ræða heimili, skóla, leikskóla, heilbrigðisstofnanir eða vinnustaði.
„Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um fólk. Byggingar eiga að þjóna þeim sem nota þær. Við verjum stórum hluta ævinnar innandyra en hugum oft ekki að áhrifum umhverfisins fyrr en eitthvað fer úrskeiðis. Þess vegna skiptir máli að hlusta á upplifun fólks, skoða aðstæður og styðjast við mælingar og faglegt mat.“
Mælingar, forvarnir og lausnir sem þjóna raunverulegum tilgangi
Disact sérhæfir sig í loftgæðamælingum, ráðgjöf, forvörnum og lausnum sem stuðla að heilnæmari innivist. Sjá nánar um þjónustuna hér
Undir stjórn Ingibjargar verður áfram lögð áhersla á að tengja saman vísindalega þekkingu, mælanlegar niðurstöður og markvissa eftirfylgni. Markmiðið er að gera einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum og stofnunum auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir um loftgæði og innivist.
„Við viljum færa umræðuna frá því að bregðast eingöngu við vandamálum yfir í að hugsa um heilnæma innivist sem sjálfsagðan hluta af daglegu lífi. Með betri upplýsingum, forvörnum og lausnum sem hafa skýran tilgang getum við skapað betri forsendur fyrir heilsu og vellíðan fólks.“
Spennandi tímar fram undan
Sólveig R. Gunnarsdóttir, stjórnarformaður Disact, segir mikla ánægju ríkja með ráðningu Ingibjargar.
„Við höfum fylgst með störfum Ingibjargar og áhuga hennar á innivist um nokkurt skeið. Hún kemur með öfluga reynslu af stjórnun og viðskiptaþróun og áhugaverða sýn á tengsl umhverfis, lýðheilsu og mannlegrar hegðunar. Sú reynsla og sýn fellur vel að framtíðaráherslum Disact og við hlökkum til samstarfsins.“
Með ráðningu Ingibjargar hyggst Disact halda áfram að þróa þjónustu sína og efla vitund um mikilvægi heilnæmrar innivistar fyrir fólk og samfélag.