Undanfarið hefur umræða um rakaskemmdir, myglu og loftgæði í skólum og öðrum byggingum aukist verulega sem er afar jákvæð þróun. Í nýlegri grein bendir líffræðingurinn og lýðheilsufræðingurinn Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir á mikilvægi þess að nálgast raka- og mygluvanda af fagmennsku, með heildarsýn og langtímahugsun að leiðarljósi. Þar erum við hjá Disact algjörlega sammála.
Rakaskemmdir og innivist eru lýðheilsumál og þess vegna skipta faglegar lausnir máli
Rakaskemmdir eru ekki einfalt viðhaldsverkefni heldur mál sem snertir heilsu fólks, vellíðan, starfsumhverfi og langtímaverðmæti bygginga. Þess vegna þarf að horfa á orsök vandans, loftgæði, innivist og fyrirbyggjandi aðgerðir sem eina samhangandi heild.
Við teljum mikilvægt að ný tækni, þróaðar greiningaraðferðir og faglegar meðferðir verði stærri hluti af lausninni á Íslandi sérstaklega þegar kemur að snemmbærri greiningu, forvörnum og markvissri eftirfylgni.
Heildræn nálgun skiptir mestu máli
Eitt mikilvægasta atriðið í umræðunni er að engin ein aðgerð leysir raka- eða mygluvanda ein og sér. Það þarf alltaf að greina orsök rakans og stöðva leka eða rakaálag áður en farið er í aðrar úrbætur. Þar er fagleg greining lykilatriði.
Þess vegna byggja lausnir Disact á heildstæðri nálgun þar sem rakaorsakir, loftgæði, innivist og langtímaáhrif eru skoðuð saman. Í öllum tilvikum þarf að fjarlægja skemmd byggingarefni og ráðast í hefðbundnar byggingaraðgerðir samhliða öðrum úrbótum. Meðferð með þokutækni, loftgæðalausnir og eftirfylgni eru síðan notuð sem hluti af stærra ferli sem miðar að því að bæta innivist, draga úr örveruálagi og skapa heilnæmara umhverfi fyrir fólk til lengri tíma. Sem dæmi má nefna að gott getur verið að þoka rými fyrir og eftir framkvæmdir til að tryggja öryggi fólks og koma í veg fyrir myglugró fjölgi sér og mygla breiðist út.

Við vinnum jafnframt náið með verkfræðistofum, þrifafyrirtækjum og öðrum sérfræðingum sem hver um sig hefur sérþekkingu á sínu sviði. Markmið okkar með því er að tryggja viðskiptavinum heildstæða þjónustu þar sem hægt er að fylgja verkefnum eftir frá greiningu og úrbótum yfir í langtímaeftirfylgni og forvarnir. Með góðu samstarfi milli ólíkra sérfræðiaðila aukast líkurnar á því að vandamál séu leyst á réttan og varanlegan hátt.
Mikil þróun hefur orðið í greiningu og loftgæðalausnum
Á síðustu árum hefur orðið mikil þróun í greiningartækni, loftgæðavöktun og meðferð við myglutengdum verkefnum. Lausnirnar sem Disact vinnur með byggja á alþjóðlegri þekkingu, rannsóknum og viðurkenndum verkferlum.
Við notum meðal annars greiningartækni sem er meðal þeirra mest notuðu í Danmörku í dag, auk DNA-greininga og loftgæðavöktunar sem hjálpa til við að greina frávik fyrr og skapa betri yfirsýn yfir raunverulegt ástand bygginga og innilofts.
Þá nýtum við einnig ActivePure tækni sem hluta af forvörnum og eftirfylgni. ActivePure hefur hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar og vottanir og er notuð víða um heim þar sem gerðar eru miklar kröfur til loftgæða og innivistar.
Við teljum að þessi þróun skipti miklu máli fyrir íslenskan markað. Framtíðin liggur ekki eingöngu í því að bregðast við þegar vandamál eru komin upp, heldur í því að greina áhættu fyrr, fylgjast betur með innivist og vinna markvisst að forvörnum.
Gæði efna og verkferla skipta máli
Við fögnum því sérstaklega að meiri umræða sé um gæði efna, tækni og meðferða við raka- og myglutengdum verkefnum. Sú umræða er bæði mikilvæg og nauðsynleg.
Það er þó mikilvægt að hafa í huga að ekki eru allar lausnir eins. Verulegur munur getur verið á efnum, innihaldsefnum, verkferlum og því hvernig meðferð er framkvæmd.

Efni Disact eru sérstaklega þróuð til notkunar í rýmum þar sem fólk dvelur. Þau eru hvorki ætandi né ertandi, skemma ekki yfirborð og eru notuð samkvæmt skýrum verkferlum og öryggisviðmiðum.
Eitt af því sem aðgreinir lausnir okkar er einnig langvarandi virkni efnanna. Þau eru hönnuð til að skilja eftir sig virkt yfirborðslag sem hjálpar til við að halda örveruvexti niðri eftir meðferð. Markmiðið er því ekki aðeins að bregðast við stöðunni eins og hún er hverju sinni, heldur að styðja við stöðugri og heilnæmari innivist til framtíðar.
Forvarnir eru mikilvægasta fjárfestingin
Það sem skiptir þó mestu máli til lengri tíma eru forvarnir.
Í mörgum tilfellum verða rakaskemmdir umfangsmeiri vegna þess að viðbrögð koma of seint. Lítil frávik í raka eða loftgæðum geta þróast yfir í kostnaðarsöm og flókin verkefni ef ekki er gripið inn í tímanlega.
Þess vegna teljum við að regluleg loftgæðavöktun, snemmbær greining og markviss eftirfylgni verði sífellt mikilvægari hluti af rekstri fasteigna, skóla og vinnustaða á Íslandi.
Forvarnir snúast ekki aðeins um að vernda byggingar og draga úr kostnaði. Þær snúast fyrst og fremst um að vernda heilsu fólks, bæta vellíðan og skapa öruggara og heilnæmara umhverfi til náms, starfs og daglegrar dvalar.
Sameiginlegt markmið: Heilnæmari innivist
Umræðan sem nú á sér stað er mikilvæg og til marks um að samfélagið sé að leggja meiri áherslu á innivist og loftgæði en áður. Það er jákvæð þróun.
Við hjá Disact teljum að besta leiðin fram á við sé aukin fagmennska, betri greiningar, meiri áhersla á forvarnir og opið samtal um þær lausnir sem raunverulega skila árangri til lengri tíma.
Þar viljum við vera hluti af lausninni með heildrænni nálgun þar sem heilsa fólks, fagleg vinnubrögð og langtímaárangur eru alltaf í forgrunni.
