Viðskiptablaðið, 5. desember 2025
Sandra Sif Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Disact ehf. Hún tók við starfinu í desember og mun leiða uppbyggingu félagsins og styðja við vöxt þess, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Sandra kemur til Disact frá Arion banka þar sem hún starfaði meðal annars í útlána- og fyrirtækjasviði, síðast sem sérfræðingur í útlánum á sviði fyrirtækja og fjárfestinga. Hún er með BA-gráðu í hagfræði, aukagrein í Stjórnun og stefnumótun og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands.
Disact ehf. sérhæfir sig í lausnum gegn myglu og örverum í húsnæði. Fyrirtækið býður upp á hraðvirka greiningu og ráðgjöf á sviði loftgæða og myglu með það markmið að bæta innivist og stuðla að heilbrigðara húsnæðum. Kjarnalausn Disact byggir á vistvænn efnablöndu sem vinnur gegn myglu, bakteríum og veirum. Fyrirtækið er með margar stoðlausnir meðal annars ActivePure lofthreinsitækni. Fyrirtækið var eitt af 11 fyrirtækjum sem hlaut fjárfesting frá Kríu Nýsköpunarsjóð í fjárfestingarátak sjóðsins nú á dögunum og er í hröðum vexti.
Stjórn Disact fagnar ráðningunni. „Við erum afar ánægð að fá Söndru til liðs við okkur í Disact. Hún býr yfir öflugri reynslu í rekstri, fasteignamarkaði, greiningum og samskiptum. Disact er á mikilvægu vaxtarskeiði og við teljum að Sandra sé rétti aðilinn til að leiða fyrirtækið inn í næsta kafla,“ segir Sólveig R Gunnarsdóttir, stjórnarformaður félagsins.
Disact ehf., var stofnað 2017 og hefur starfað fyrir ríki- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir um land allt.