Forvarnir & eftirfylgni

Við hjá Disact leggjum áherslu á langtímahugsun. Við þurfum ekki alltaf að bíða þar til vandinn verður sýnilegur. Með réttum verkfærum er hægt að fyrirbyggja, fylgja eftir og taka betri ákvarðanir í rekstri og viðhaldi fasteigna.

Reglubundin þjónusta, Loftgæðavöktun og notkun ActivePure® loft- og yfirborðstækni tryggja varanlega bætt loftgæði og draga úr líkum á endurkomu vandans. 

Loftgæðavöktun

Með loftgæðavöktun frá Disact getur þú gripið inn í áður en mygla eða loftgæðavandamál myndast. Við setjum upp sírita á starfsstöðvum þínum og fylgjumst stöðugt með aðstæðum sem geta haft áhrif á heilsu, rekstur og ástand húsnæðis.

Hvernig virkar loftgæðavöktun?

  • Uppsetning: Við setjum upp eitt eða fleiri mælitæki á hverja starfsstöð. Tækin fylgjast stöðugt með loftgæðum (t.d. raka, CO₂, svifögnum og VOC efnum)
  • Vöktun og yfirsýn: Disact fylgist stöðugt með mæligögnum og lætur vita ef frávik koma fram. Viðskiptavinir geta sjálfir fylgst með loftgæðum í rauntíma í gegnum smáforrit.
  • Viðbragð: Við bregðumst við með ráðgjöf og/eða aðgerðum ef loftgæði fara undir eðlileg mörk eða merki benda til þess að mygla gæti farið að myndast.

 

Loftgæðavöktun gerir fyrirtækjum kleift að taka upplýstar ákvarðanir og skapa heilbrigðara vinnuumhverfi. Slík vöktun getur haft jákvæð áhrif á vellíðan starfsfólks, framleiðni og rekstraröryggi. Þjónustan hentar öllum sem vilja hafa yfirsýn yfir loftgæði og grípa inn í áður en vandamál myndast. Fyrir fyrirtæki og stofnanir getur hún dregið úr rekstraráhættu, bætt vinnuumhverfi og hjálpað til við að viðhalda verðmæti húsnæðis til lengri tíma.

Active Pure

ActivePure® er rannsóknadrifin loft- og yfirborðstækni sem myndar virkar oxandi sameindir, svipaðar þeim sem myndast náttúrulega utandyra, og vinnur þannig gegn örverum í lofti og á yfirborðum. Lausnin styður við heilbrigðara umhverfi og getur dregið úr smiti og uppsöfnun skaðlegra agna innandyra.

Ólíkt hefðbundnum loftsíum, sem einungis fanga agnir, myndar ActivePure® stöðugt virkar sameindir sem stuðla að virkri örverustýringu í rýminu sjálfu. Rannsóknir sýna fram á allt að 99,99% fækkun á sveppum, bakteríum og öðrum örverum í lofti og á yfirborðum innan 60 mínútna. Tæknin er FDA – Class 2 vottuð lækningatækni og má því fara inn í heilbrigðisstofnanir, spítala, heilsugæslur.

Lausnin hentar fyrirtækjum og stofnunum sem vilja bæta loftgæði og skapa heilbrigðara umhverfi fyrir starfsfólk og viðskiptavini. Með því að draga úr magni örvera í lofti og á yfirborðum getur hún minnkað líkur á smiti og stuðlað að minni veikindafjarvistum og stöðugri rekstri.

Active Pure í loftstokka

Þegar ActivePure einingar eru settar í loftræstikerfi nýtist tæknin um allt rýmið með loftflæðinu. Þetta hentar sérstaklega vel í:

  • Stærri byggingar og atvinnuhúsnæði.
  • Skóla, skrifstofur og þjónusturými.
  • Fjölbýlishús og sameignir.
  • Með þessari lausn verður loftgæðabætandi virkni hluti af daglegri starfsemi húsnæðisins – sjálfvirk og stöðug. 

Frístandandi ActivePure tæki

Frístandandi tæki eru sveigjanleg lausn fyrir rými þar sem ekki er mögulegt eða hagkvæmt að vinna í loftstokkum. Þau henta vel í:

  • Einstök rými eða afmarkaðar deildir
  • Heilbrigðis- og meðferðarrými
  • Heimili og smærri atvinnustarfsemi

Tækin eru einföld í uppsetningu og veita samfellda stuðning við betri loftgæði þar sem þörfin er mest. Við bjóðum Active Pure tækin bæði til leigu og sölu.

Regluleg þokun

Þokun er markviss og skilvirk aðferð til að viðhalda hreinni innivist. Með því að framkvæma þokun reglulega er hægt að halda líffræðilegri virkni í skefjum og koma í veg fyrir að vandamál þróist yfir í umfangsmeiri rakaskemmdir eða mygluvöxt.

Við mælum almennt með að rými séu þokuð 1–2 sinnum á ári, sérstaklega þar sem:


• Mikil umferð fólks er
• Næmi fyrir loftgæðum er hátt (t.d. í skólum, heilbrigðisrýmum og skrifstofum)
• Saga er um raka eða mygluvandamál
• Mikilvægt er að viðhalda stöðugum og mælanlegum gæðum innivistar

Regluleg þokun er einföld, hagkvæm og fyrirbyggjandi leið til að vernda húsnæði og heilsu þeirra sem þar dvelja.

Hvaða lausn hentar mér?

Við hjálpum þér að setja upp lausn sem hentar þínu rými og þínum þörfum – hvort sem um er að ræða heimili, stofnun eða atvinnuhúsnæði. Hafðu samband og fáðu ráðgjöf um hvernig þú getur tryggt heilbrigðara og öruggara inniloft til framtíðar.

Ef grunur kemur upp um myglu

Raka- og mygluvandamál eru útbreidd á Íslandi og alþjóðlega. Yfir 50% fasteigna á Íslandi glíma við slík vandamál, þar á meðal opinberar byggingar. Afleiðingarnar eru aukin veikindatíðni, minni framleiðni, rekstrartruflanir og verðrýrnun fasteigna. Mikilvægt er að bregðast við strax og grunur kemur upp til a fyrirbyggja frekari skaða.

1. Ráðgjöf í síma eða tölvupósti

Við byrjum á stuttu símtali þar sem farið er yfir aðstæður og metið hvort ástandsskoðun sé nauðsynleg.

2. Ástandsskoðun og greining

Húsnæðið skoðað með tilliti til raka og mögulegra rakaskemmda. Rakamælingar og skoðun með hitamyndavél.

3. Niðurstöður og tillaga til úrbóta

Við skilum niðurstöðum greininga og ástandskoðunnar með ítarlegri skýrslu og leggjum til úrbætur.

4. Lausnir til úrbóta

Sérþróuð myglu- og sótthreinsiþokun sem styður við virka hreinsun lofts og yfirborðs.

5. Eftirfylgni &/eða forvarnir

Regluleg þokun (1–2 sinnum á ári) getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi rýmis. ActivePure lausnir nýtast vel til að styðja við stöðug loftgæði til lengri tíma.

Markmiðið

Markmiðið er að stuðla að öruggara og hreinna nærumhverfi – á heimilum, vinnustöðum og í opinberum rýmum.