Disact kynnir nýja þjónustu:

Loftgæðavöktun sem styrkir forvarnir og bætir innivist.

Disact hefur nú formlega sett á markað nýja þjónustu í loftgæðavöktun sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgjast með loftgæðum í rauntíma og bregðast við áður en vandamál verða sýnileg eða hafa áhrif á heilsu, líðan og rekstur.

Þjónustan hefur verið í þróun undanfarna mánuði í nánu samstarfi við viðskiptavini sem tóku þátt í prófunarfasa, sem og erlenda samstarfsaðila með sérþekkingu á sviði loftgæða og mælitækni. Niðurstöður prófunarinnar sýna að stöðug vöktun getur skipt sköpum þegar kemur að því að greina frávik snemma og koma í veg fyrir kostnaðarsamar aðgerðir síðar.

Frá viðbrögðum yfir í forvarnir

Hingað til hafa loftgæðamál oft verið greind þegar einkenni eru orðin sýnileg – til dæmis í formi rakavandamála, myglu eða óþæginda í rýmum. Með nýrri þjónustu Disact er nálgunin önnur: að greina breytingar í umhverfinu á frumstigi og grípa inn í áður en vandinn þróast.

„Markmiðið er að færa viðskiptavini frá því að bregðast við vandamálum yfir í að fyrirbyggja þau. Loftgæði eru lifandi stærð sem breytist stöðugt og því þarf stöðugt eftirlit til að ná raunverulegum árangri,“ segir Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Disact.

Rauntímagögn og virkt eftirlit

Lausnin byggir á snjallri mælitækni þar sem eitt eða fleiri tæki eru sett upp á hverja starfsstöð, allt eftir stærð og eðli rýma. Mælitækin safna gögnum um lykilþætti loftgæða og senda í rauntíma í stafrænt mælaborð.

Viðskiptavinir geta sjálfir fylgst með stöðunni í gegnum app eða vefviðmót, en jafnframt sér Disact um virkt eftirlit með mælingum. Ef gildi fara út fyrir skilgreind viðmið bregst teymið við og leggur til viðeigandi aðgerðir.

Þjónustan felur meðal annars í sér:

  • Stöðuga vöktun á loftgæðum í rauntíma
    • Tækin okkar mæla meðal annars CO₂, TVOC, NO₂, PM svifryk, hita og raka
  • Sjálfvirkar viðvaranir við frávikum
  • Greiningu og túlkun gagna
  • Ráðgjöf og tillögur að úrbótum

Mælanlegur ávinningur fyrir rekstur

Góð loftgæði hafa bein áhrif á líðan, heilsu og afköst þeirra sem dvelja í rýmum, auk þess að draga úr áhættu tengdri rakaskemmdum og myglu. Með reglulegri vöktun er hægt að:

  • Greina frávik snemma og lágmarka umfang skemmda
  • Draga úr ófyrirséðum kostnaði
  • Styðja við betri innivist og vellíðan starfsfólks og viðskiptavina
  • Auka rekstraröryggi og fyrirsjáanleika

Þjónustan hentar jafnt fyrirtækjum, fasteignafélögum og opinberum aðilum sem vilja taka markviss skref í átt að bættri innivist og auknu öryggi í sínum rekstri.

Hluti af heildarlausn Disact

Loftgæðavöktun er hluti af heildstæðri nálgun Disact að innivist og loftgæðum, þar sem áhersla er lögð á þrjú lykilskref: greiningu, meðhöndlun og forvarnir. Með því að bæta stöðugri vöktun við þessa nálgun er hægt að skapa enn sterkari grunn að heilnæmu og öruggu umhverfi til lengri tíma.

Nánari upplýsingar
Hafðu samband við okkur til að fá kynningu á þjónustunni og hvernig hún getur nýst þínu fyrirtæki.

📧 disact@disact.is
🌐 Fá tilboð