Í samstarf um mygluþokun og þrif

Morgunblaðið, 11. janúar 2026

Disact, íslenskt líftæknifyrirtæki sem hefur þróað lausnir til að bæta loftgæði og draga úr mygluvandamálum í húsnæði og ræstingafyrirtækið Dagar hafa skrifað undir samstarfsyfirlýsingu. Markmið samstarfsins er að efla þjónustu við íslensk fyrirtæki og stofnanir á sviði ræstinga, loftgæða og mygluvarna.

Vantar oft þrif

Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Disact, segir í samtali við Morgunblaðið að í tilvikum Disact vanti fyrirtækinu oft þrif á eignum áður en farið er í mygluþokun. „Á sama tíma eru Dagar að þjónusta eignir með mygluvandamál. Þar getum við komið inn, gert mælingar og „þokað“ með sérstöku mygluvarnarefni, sem Disact hefur þróað,“ útskýrir Sandra. Mygluvarnir eru þó ekki það eina sem Sandra sinnir því hún er einnig hluti af ráðgjafarfyrirtækinu Strata Advisory sem sérhæfir sig í fjármálum fyrirtækja. „Nú er verið að ganga frá nafnabreytingu á félaginu sem áður hét Sólveig consulting. Samhliða kynnum við nýtt vörumerki og heimasíðu.”

Greinin í heild sinni er aðgengileg áskrifendum Morgunblaðsins.