Hvernig hefur vinnuumhverfið áhrif á heilsu og líðan starfsfólks? Ingibjörg Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Disact, fjallaði um þetta í grein á Vísi og í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 9. nóvember.
Umræða um veikindafjarvistir hefur verið áberandi að undanförnu, ekki síst vegna kostnaðarins sem þeim fylgir. En þegar rætt er um veikindadaga, réttindi og fjarvistir er mikilvægt að horfa einnig til þeirra aðstæðna sem fólk vinnur við á hverjum degi.
Í grein sinni á Vísi vekur Ingibjörg athygli á því að vinnuumhverfið sé mikilvægur þáttur í heilsu og líðan starfsfólks. Þar skipta loftgæði, loftræsting, hitastig, rakastig, lýsing og hljóðvist meðal annars máli.
Fyrirtæki og stofnanir leggja gjarnan áherslu á heilsueflingu starfsfólks með ýmsum úrræðum, en aðstæður í húsnæðinu sjálfu fá ekki alltaf sömu athygli.
Rannsóknir hafa sýnt að þættir á borð við loftræstingu og gæði innilofts geta haft áhrif á heilsu, líðan og frammistöðu. Því er mikilvægt að horfa á innivist sem hluta af forvörnum og heilsueflingu á vinnustöðum.
Ingibjörg ræddi þessi sjónarmið nánar í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni sama dag og greinin birtist.
Hjá Disact leggjum við áherslu á að heilnæmt vinnuumhverfi sé ekki aðeins spurning um viðbrögð þegar vandamál koma upp, heldur einnig mælingar, forvarnir og markvissa eftirfylgni.
Nánari umfjöllun: