Morgunblaðið, 10. desember 2025
Aðalmarkmið sóttvarna- og myglufyrirtækisins Disact á komandi misserum er að skapa stöðugt tekjuflæði og tryggja að almenningur, fyrirtæki og stofnanir geri sér grein fyrir þeirri tækni sem félagið hefur þróað. Þetta segir Sandra Sif Stefánsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Disact, um sínar áherslur í starfi. Hún segir að rekstraráherslur snúist fyrst og síðast um markaðsvæðingu og tekjuöflun. „Mitt fyrsta verkefni er að koma vitundarvakningu af stað. Það eru fáir sem vita að þessi lausn er til og hversu mikinn kostnað hún sparar,“ segir hún. „Til þess að reksturinn standi traustum fótum þurfum við að tryggja tekjur, það er algert lykilatriði.
Greinin í heild sinni er aðgengileg áskrifendum Morgunblaðsins.