Veikindafjarvistir: Hvað gleymist í umræðunni?

Hvernig hefur vinnuumhverfið áhrif á heilsu og líðan starfsfólks? Ingibjörg Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Disact, fjallaði um þetta í grein á Vísi og í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 9. nóvember. Umræða um veikindafjarvistir hefur verið áberandi að undanförnu, ekki síst vegna kostnaðarins sem þeim fylgir. En þegar rætt er um veikindadaga, réttindi og fjarvistir er […]

Ingibjörg Magnúsdóttir nýr framkvæmdastjóri Disact

Disact eflir áherslu á lýðheilsu, heilnæma innivist og áhrif umhverfis á heilsu, líðan og hegðun fólks. Ingibjörg Magnúsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Disact. Hún kemur til fyrirtækisins með víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og viðskiptaþróun ásamt menntun á sviði mannfræði og lýðheilsuvísinda. Ingibjörg starfaði áður sem viðskiptaþróunarstjóri Lotu verkfræðistofu og þar áður um árabil hjá Barnahjálp […]

Fjármögnun lokið

Viðskiptablaðið, 19. ágúst 2025 Disact hefur lokið fjármögnun þar sem félagið sótti hátt í 85 milljónir króna frá fjárfestum. Meðal fjárfesta er Nýsköpunarsjóðurinn Kría, auk hóps einkafjárfesta og nýrra hluthafa. Disact er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun, forvörnum og eftirfylgni vegna myglu, örvera, baktería og loftgæða í húsnæði. Félagið byggir á rannsóknum, […]

Tekur allt niður í hálftíma að drepa myglu

Útvarpsviðtal í Bítinu á Bylgjunni, 19. janúar 2026 Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri DISACT og Sólveig R. Gunnarsdóttir, stjórnarformaður DISACT, ræddu þetta íslenska nýsköpunarfyrirtæki.

Í samstarf um mygluþokun og þrif

Morgunblaðið, 11. janúar 2026 Disact, íslenskt líftæknifyrirtæki sem hefur þróað lausnir til að bæta loftgæði og draga úr mygluvandamálum í húsnæði og ræstingafyrirtækið Dagar hafa skrifað undir samstarfsyfirlýsingu. Markmið samstarfsins er að efla þjónustu við íslensk fyrirtæki og stofnanir á sviði ræstinga, loftgæða og mygluvarna. Vantar oft þrif Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Disact, segir í […]

Vitundarvakning mikilvæg fyrir Disact

Morgunblaðið, 10. desember 2025 Aðalmarkmið sóttvarna- og myglufyrirtækisins Disact á komandi misserum er að skapa stöðugt tekjuflæði og tryggja að almenningur, fyrirtæki og stofnanir geri sér grein fyrir þeirri tækni sem félagið hefur þróað. Þetta segir Sandra Sif Stefánsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Disact, um sínar áherslur í starfi. Hún segir að rekstraráherslur snúist fyrst og síðast […]

Sandra nýr framkvæmdastjóri Disact

Viðskiptablaðið, 5. desember 2025

Viðskiptablaðið, 5. desember 2025 Sandra Sif Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Disact ehf. Hún tók við starfinu í desember og mun leiða uppbyggingu félagsins og styðja við vöxt þess, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Sandra kemur til Disact frá Arion banka þar sem hún starfaði meðal annars í útlána- og fyrirtækjasviði, síðast sem […]

Disact

Nýsköpunarsjóðurinn Kría, 2025 Byltingakenndar lausnir til greininga, meðhöndlunar og forvarna gegn myglu, bakteríu og veira í húsnæði og vistarverum með það að markmiði að bæta innivist, loftgæði og heilsu bygginga á sjálfbæran og hagkvæman hátt. DISACT ehf. er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í því að greina og leysa myglu- og rakavandamál. Disact sameinar vísindi, […]

Fyrirbyggjandi mygluvarnir

Disact hefur þróað vörur sem fyrirbyggja myglur í húsnæði. Fyrirtækið byggir á íslensku hugviti og hefur samið við fjölda fyrirtækja og stofnana hér á landi. Greinin er lengri og einungis aðgengileg áskrifendum Viðskiptablaðsins

Nýta íslenskt hugvit gegn veirunni

Morgunblaðið, 28. september 2020 Íslenska sprotafyrirtækið Disact vinnur að þróun sótthreinsibúnaðar og handhreinsifroðu sem gætu m.a. hjálpað í báráttunni gegn kórónuveirunni en einnig aukið hreinlæti almennt og þannig dregið úr útbreiðslu sjúkdóma af ýmsu tagi. Disact er systurfélag D-Tech sem fjallað var um í sérblaði um sjávarútveg sem Morgunblaðið gaf út í sumar. D-Tech framleiðir […]