ACTIVE PURE

aukin loftgæði - betri líðan

Betri loftgæði með ActivePure®

ActivePure Technology er frábær kostur fyrir alla sem vilja bæta loftgæði sín. DISACT býður upp á margar einingar knúnar af ActivePure Technology® sem hægt er að sameina í sérsniðnar lausnir til að vernda nánast hvaða rými sem er innandyra. Ef þú hefur áhyggjur af vörum eða öðrum umhverfismengun innandyra mælum við með að þú ræðir við sérfræðinga okkar um DISACT vörur með Active Pure Technology. 

ActivePure® er einstök hreinsunartækni sem leysir fjölmörg vandamál vegna mengunar í lofti og á yfirborði innanhúss. Hefðbundin óvirk tækni eins og HEPA notar síun eða rafstöðufræðileg kerfi sem fjarlægja eingöngu mengunarefni ef og þegar slík efni berast í gegnum hreinsunartækið. Hefðbundin síunarkerfi af slíkri gerð draga úr loftmengun að einhverju leyti en draga hins vegar að engu leyti úr yfirborðsmengun né loftbornum mengunarefnum á fullnægjandi hátt.

EINSTÖK AÐFERÐ

Einkaleyfisvarða ActivePure® tæknin okkar vinnur á virkan hátt gegn veirum og sýklum, bæði í loftinu og á yfirborðinu og sér um að eyða slíkum sjúkdómsvöldum við snertingu.   ActivePure® er að stofni til fengin úr tækniaðferð frá Geimferðarstofnun Bandaríkjanna (NASA) sem er í notkun í Alþjóðlegu geimstöðinni.

VOTTUÐ GEIMTÆKNI

Hér er um að ræða einu vottuðu geimtæknina í þessum flokki í veröldinni. ActivePure® tækni felur í sér notkun á einkaleyfisvörðu vatnssæknu húðunarefni með ljóshvetjandi eiginleika. Húðunarefnið inniheldur títandíoxíð án nanóefna ásamt einkaleyfisvarinni blöndu af umbreytandi efnum til að auka skilvirkni. Efnið er virkjað af tiltekinni bylgjulengd útfjólubláss ljóss og dregur í sig súrefni og raka í loftinu.

 

Þannig verður til mikill fjöldi öflugra oxara sem vinna gegn sjúkdómsvöldum í lofti og á yfirborði. Slíkir oxarar eru afar áhrifaríkir við að eyða RNA- og DNA-veirum, bakteríum, rokgjörnum lífrænum efnasamböndum og öðrum mengunarefnum í umhverfinu. ActivePure® tækni notar ekki hættuleg íðefni heldur oxara sem fyrirfinnast í náttúrunni. Slíkir oxarar ganga undir nafninu ActivePure® sameindir og eru ekki hættulegir mönnum, gæludýrum né plöntum. Slíkir oxarar eru einnig að öllu leyti hættulausir við notkun innanhúss.